|
|
08.09.2009 08:16:06 / osigur
Við vorum að koma úr fríi frá Turgutreis í Tyrklandi. Staðurinn er algerlega frábær fyrir sóldýrkendur, já og einnig þá sem hafa áhuga á menningu og sögu því þarna er eitt og annað sem þykir áhugavert og sérstakt í þeim efnum. Okkar áhersla var nú fyrst og fremst á sólina því fríið var stutt og langþráð að liggja í leti með bjórglas í annarri og sólarkremið í hinni  En við erum strax farin að leggja fyrir í næstu ferð og þá ætlum við að vera í hálfan mánuð. Framundan núna eru endalaus fundahöld, ráðstefnur og þvælingur tengd vinnunni, september er alltaf nokkuð annasamur þannig. Og svo eru auðvitað réttir líka á næsta leyti, verst hvað ellin er að fara illa með mig, ætli ég geti nokkuð dregið  over and out...
»
29.05.2009 13:21:38 / osigur
Ég á fjögurra vetra fola sem heitir Tvistur. Nafnið fékk hann vegna þess að hann minnti svolítið á sínum yngri árun á svona tvist sem notaður er í bílabransanum, s.s. svolítið tætingslegur. Og liturinn var líka einhvernveginn óviss, ljós/bleikur/grár/blár/..já og eitthvað en nú er hann bara grár eins og móðirin hún Þrinna. En semsagt, nú er komin upp sú staða að ég hef engin áform uppi um Tvistinn. Upphaflegu áformin voru að temja hann fjögurra vetra og gera úr honum glæstan reiðhest. Í dag vantar mig ekki reiðhest, eiginlega vantar mig frekar bara kerru, eða  mér dettur eiginlega ekkert annað í hug ja.. nema kannski bara seðla $$$, það er alltaf hægt að eyða þeim. Bara svona smá hugleiðing um þarfa og óþarfa
»
20.05.2009 09:18:37 / osigur
Nánast í hverjum fréttatíma sem sendur er út hvort heldur í sjónvarpi eða útvarpi kemur þetta orð fyrir "auðmenn Íslands". Hvað er málið?? Ef ég færi nú og rændi eitt af bankaútibúunum hér á Egilsstöðum, hvort skyldi ég komast í auðmannahóp íslands eða glæpamannahóp íslands?
jú, aðferðin við ránið er auðvitað það sem skiptir máli, ekki satt?
»
03.04.2009 09:25:41 / osigur
u...já eða Egilstaðafréttir, semsagt ekki miklar en páskafríið er á næsta leyti og stefnan er tekin í Húnaþing vestra í fermingu, þaðan í Þorlákshöfn í fimmtugsafmæli og þaðan áfram austur. Við náum semsagt að skreppa hringinn þessa páskana. Erfitt hvað ættingjar og vinir dreifa sér út um allt land  Annars gengur lífið sinn vanagang, Addi vinnur og vinnur, ég hleyp og hleyp og vinn svolítið, kötturinn, .. já er bara köttur og hrossin fá enga athygli, nema þetta rauða út í bílskúr sem þvegið er, bónað og strokið um hverja helgi núna og á að fara að skreyta með númeri til þess að hægt sé að viðra um leið og veður leyfir. Skotland, Orkneyjar, Shetlandseyjar framundan í þessum mánuði. Hvannadalshnjúkur í maí og Færeyjar í júní. over and out...
»
30.01.2009 16:57:34 / osigur
Nú á tímum atvinnuleysis og kreppu er ýmislegt sem gleður lítilmagnann. Til dæmis var ég að selja íbúðina mína á Akureyri og gleðst yfir því, ...já eða þannig. Auðvitað sé ég á eftir henni þar sem ég var búin að vinna óhemju mikið í að gera hana upp og mér líkaði vel að búa innan um fjölskrúðugt mannlífið á eyrinni. En svona er nú lífið, íbúðin gagnaðist lítið þegar búsetan var komin í annan landsfjórðung og það er víst nóg að vera að kaupa eina íbúð í einu  Annað sem gleður er afskaplega midlur vetur "so far" og janúar að verða búinn. Ég er búin að stunda útihlaup í allan vetur og hef aldrei þurft að sleppa úr degi veðurs vegna. Á morgun stöndum við fyrir keppnishlaupi nr. 4 í hlaupasyrpu vetrarins, vonandi verður veðrið gott áfram  Við erum búin að vera óhemju dugleg í vinnunni. Tiltektardagar í gangi og nú er farið í gegnum möppur og möppur og hent og hent og hent. Ótrúlegt hvað safnast upp af pappír á svona vinnustað og þegar mannabreytingar verða veit enginn hvað allar þessar möppur innihalda. Annars lítið til tíðinda, óver og át.....
»
02.01.2009 15:43:22 / osigur
Ég óska gleðilegs nýs árs öllum vinum og vandamönnum sem kíkja á þessa síðu mína. Við erum búin að hafa það ósköp gott um jól og áramót, ef hægt er að kalla það gott að borða og drekka í óhófi  Hrafnhildur og Lára tengdó voru með okkur á aðfangadagskvöld og um áramótin bættust foreldrar mínir í hópinn. Mikilli matar- og drykkjarveislu var slegið upp enda var planið fyrir kvöldið eingöngu að borða vel og lengi og horfa á áramótaskaupið. Um kvöldið kíktu svo Nonni og Arna í heimsókn svo þetta var hið ánægjulegasta kvöld. Í dag voru síðan allir farnir og ég er ekki frá því að Lobba kisa, sem ekki er nú mjög hrifin af miklum gestagangi, verði hálf einmana, hún var farin að kunna svo ágætlega við að hafa soninn í heimsókn, en hann auðvitað hélt heim á leið með Hrafnhildi í dag. Svo er bara vinnan og hversdagsleikinn framundan en það er líka ágætt, alltaf gaman í vinnunni
»
26.11.2008 08:47:51 / osigur
Já pólverjarnir blessaðir sem leigja íbúðina mína á Akureyri eru að flytja til síns heima, þar með er íbúðin á lausu og sennilega ekkert að fara að seljast ef marka má umræðu undanfarið um fasteignamarkaðinn  Svo ef einhver veit um einhvern sem vantar íbúð á besta stað á Akureyris, þá má sá sami benda viðkomandi á íbúðina mína fínu, hún er laus frá 1 des. Annars er hálf dauft yfir öllu/m um þessar mundir. Mesta spennan í lífinu er að sjá hvað lánin hafa hækkað mikið um hver mánaðarmót. Mér finnst annars merkilegur málflutningur hjá pólitíkinni, ég man ekki hvort það var Ingibjörg Sólrún eða Þorgerður Katrín sem sagði á borgarafundinum í Háskólabíói þegar spurt var um verðtrygginguna og leiðir til þess að íbúðarlánin settu fólk ekki í þrot að sko... fólki yrði gert svo auðvelt að verða gjaldþrota, nú ætti sko ekki að hundelta fólk árum saman svo það þyrfti helst að flytja úr landi. Nei, nú á sko að verða auðvelt að fara í gjaldþrot  vááá... Annars bara fátt héðan, það er ekki búið að kveikja jólaljósin á Héraði nema að mjööööög litlu leyti
»
24.08.2008 12:34:18 / osigur
Við skötuhjú erum komin úr Skotlandsreisunni, Addi svolítið bústnari að framan en venjulega eftir ööörfáa Guiness og ég eins og bólusóttarsjúklingur eftir EKKI örfáar mýflugur sem fannst ég bragðast frábærlega .
Á leiðinni heim (þ.e áður en við fórum austur) kom ég við á Bifröst og varði lokaritgerðina mína. Ég varði hana ekki vel og var ekkert voða ánægð með útkomuna en þessum kafla er samt lokið og ég því búin með meistaranámið núna. Daginn eftir vörn brunuðum við heim á mótorfákum okkar þeim Blakk og Rauð. Að þessu sinni keyrðum við syðri leiðina og þar með náðum við að loka hringnum í sumar.
Í gær skelltum við okkur á sjóinn frá Borgarfirði, í blíðskaparveðri. Við vorum með handfæri og sjóstöng og fengum þennan fína afla, aðallega á stöngina. Og tegundirnar sem fengust voru æði fjölbreyttar. Þorskur, ýsa, lýsa, steinbítur, koli, makríll og síðast en ekki síst lúða og til sanninda læt ég fylgja mynd af mér með lúðuna sem veiddist, tæplega 15 kg. stykki sem ég fékk á stöngina. 
»
05.08.2008 22:09:58 / osigur
Nýjustu fréttir af Austurlandi eru þær að ég fékk skoðun á bílinn minn athugasemdalaust. Ekki það að ég hafi ekki átt von á því, þar sem þetta er eðalkerra, en þegar bílar eru að nálgast tvítugsaldurinn má svosem alltaf búast við einhverju nöldri frá skoðunarmönnum. En það semsagt var ekki og allir voða kátir  Verslunarmannahelgin var róleg hjá okkur skötuhjúunum, við pökkuðum okkar viðlegubúnaði á mótorfákana og keyrðum til fjalla, nánar tiltekið upp á Möðrudalsöræfi. Þar höfðum við frétt af fiskisælu vatni sem ágætur vegur átti að liggja að og því gott að komast að því og fínt að tjalda þar. Við komumst að vatninu en ekki er hægt að mæla með því að fara það á venjulegum mótorhjólum þar sem vegurinn er tja.. alls ekki góður skulum við segja. Palli kæmist það hinsvegar vandræðalaust á fjórhjólinu sínu.  Það var fínt að tjalda á vatnsbakkanum og kyrrðin og umhverfið var dásamlegt. Við vorum búin að undirbúa dýrindis veislu, tókum upp kartöflur úr garðinum (fínasta uppskera) keyptum okkur salat og hvítvín og svo var tekið með einnota grill fyrir silunginn sem átti að vera uppistaða veislunnar. Eftir að berja vatnsflötinn í á fimmtu klukkustund og bjóða mikið úrval spúna og maðka án árangurs, var okkur nú ekki farið að lítast á blikuna og sáum fram á þunnan þrettánda í fyrirhuguðum hátíðarkvöldverði. Það bjargaði hinsvegar kvöldinu að niður að vatninu snöruðust tveir vaskir kappar með gúmbát og fóru út á vatn að vitja um net sín. við semsagt grenjuðum út úr þeim fisk í soðið þegar þeir komu að landi með ágætis veiði. Heim var því haldið daginn eftir með öngulinn í þið vitið hvar, en svöng vorum við allavega ekki. Aldeilis ágætis verslunarmannahelgi semsagt. Nú erum við svo að undirbúa okkur fyrir Skotlandsferð í næstu viku en þar verða tré, skógrækt og wiskyverksmiðjur skoðaðar af krafti. Ekki leiðinlegt það   og hér er verið að græja steikina
»
22.06.2008 12:49:36 / osigur
Í gær var skógardagurinn mikli haldinn með tilþrifum í Hallormsstaðaskógi. Ég kom að undirbúningi dagsins fyrir minn vinnustað en vissi svosem ekki alveg á hverju var von þar sem ég hef ekki tekið þátt áður. Fólki er boðið að koma í skóginn og þyggja allskonar veitingar, s.s grillaðar pylsur, ketilkaffi og skógarlummur og síðast en ekki síst er eitt stykki naut heilgrillað. Með matföngunum er síðan hægt að fylgjast með Íslandsmeistaramóti í skógarhöggi, hlusta á tónlistaratriði o.fl. o.fl Það er sklemst frá því að segja að dagurinn tókst mjög vel og ótrúlega margir komu í skóginn, allavega kláraðist nautið og um 1000 pulsur voru grillaðar og etnar  En af því ég var inn í Hallormsstað komst ég náttúrulega ekki í fjallaskokk á Vatnsnesi, né heldur Akureyrarhlaup, en hvorutveggja eru atburðir sem ég hef oftast reynt að taka þátt í. En svona er þetta, sumarið er fullt af atburðum og útilokað að taka þátt í öllu sem maður þó gjarnan vildi  Og að lokum, 2 sæta kettlinga vantar gott heimili, þeir eru aaaafskaplega vel upp aldir, stilltir og prúðir. Á myndinni sést annar, grár/hvítur högni, mikið uppáhald hjá mér.
»
22.05.2008 18:10:36 / osigur
 Nýjustu fréttir héðan eru að kettlingar stækka og eru aðð byrja að vera skemmtilegir. á myndinni má sjá systkynin svörtu, ef ég hef kyngreint rétt er þetta læða fyrir framan en högni aftar. Það hefur hinsvegar stundum brugðist hjá mér að þekkja þetta í sundur  Á hinni myndinni er öll familian að kíkja út um gluggann á sérsmíðaða kattahúsinu hérna (kaupfélagspappakassi).  Og þá er það bara eurovision...
»
14.05.2008 15:34:46 / osigur
Það var heilmikið ferðalag á okkur um hvítasunnuhelgina, eiginlega aldrei þessu vant (eða þannig). Húkkuðum okkur far vestur á bóginn á föstudagskvöldið, á Akureyri nánar tiltekið og þar var Hrafnhildur komin að sækja okkur. Skítaveður og leiðinda færi en á leiðarenda komumst við þrátt fyrir það, Hrafnhildur er alveg brill bílstjóri sko. En ferðalagið til baka var veðurfarslega mun skemmtilegra, bongóblíða á mánudaginn og við á mótorfákunum sem Skúli var búinn að hýsa í hálfan mánuð. Já og auðvitað er ekki slæmt að ferðast á svona farartækjum.  Læt hér fylgja lýsandi mynd á miðjum öræfum. Þetta var bara gaman. Ég var síðan rétt komin austur þegar ég stökk upp í flugvél suður en þar var fundur á þriðjudagsmorgun. Kattaræktin gengur vel og ég á örugglega eftir að koma með fleiri myndir af þeim síðar Þar til síðar..
»
09.05.2008 16:43:34 / osigur
Jæja, þá er loksins fjölgað í kattarstofni heimilisins. Ég átti von á fjöldanum öllum af kettlingum, mér fannst kisa orðin svo feit, en svo komu bara þrjú stykki. Tveir svartir eins og erfðasyndin og einn grár og hvítur. Þeir eru nú ósköp sætir greyin  ..........
»
19.04.2008 15:08:05 / osigur
Það er hálf aumt hjá okkur ástandið þessa dagana. Flensan kom við hjá okkur, hitti Adda fyrst og svo harkalega að hann lagðist í lungnabólgu um síðustu helgi. Ég hinsvegar fékk vægari meðferð og hefðbundnari með hitavellu, beinverki og hósta. Þetta er alveg hroðalega "timað" hjá okkur því loksins er sólin farin að skína og vorið á næsta leyti. Nágrannarnir allir úti að þrífa bílana eða vesenast eitthvað annað á stuttbuxum og ermalausum bol  En það þýðir víst lítið að grenja yfir því og eins gott bara að einbeita sér að sínum verkum og verkjum ...ehhh eða þannig. Við ætlum okkur að vera í Reykjavík á sumardaginn fyrsta og þar sem hann er alveg að skella á er eins gott að losa sig við flensuófétið sem fyrst. Kisa verður óléttari með hverjum deginum en reynir samt ákaft að veiða fuglana sem þyrpast að á hverjum degi. Vorið er hreint dásamlegur tími, ég veit fátt yndislegra í morgunsárið en heyra þrestina að missa sig í ástardúett og í gæsinni í fjarska spjalla um hvar best sé að bera niður í morgunmat eða e-ð álíka.
»
09.04.2008 16:33:54 / osigur
Það er ekkert lát á flandrinu á mér, á miðvikudag í síðustu viku keyrði ég á Hvolsvöll til þess að sitja fagráðstefnu skógræktargeirans og síðan aðalfund skógareigenda. Þetta varð mikil ævintýraför, við vorum tvær á bíl og ég tók kerru með (nýta ferðina í húsgagnaflutninga) en við Addi höfðum nýverið fest okkur til kaups borðstofuborð og stóla eftir smáauglýsingu. Nema hvað, ...ekki leist ferðafélögum mínum of vel á þessa ráðagerð mína með kerruna og það kom á daginn að hún skapaði bara vandræði og var að lokum skilin eftir rétt utan við Höfn. Og eins gott því skömmu síðar lentum við í svo brjáluðu veðri að kerrugarmurinn hefði eflaust endað í druslum út í móa ef hún hefði verið áfram með í för. En við komumst á leiðarenda eftir langt ferðalag og fengum ansi margar útgáfur af veðri, sýnu verst í Mýrdal en þar var blindhríð á köflum. Ég sem hélt að það væri komið vor  Funda- og ráðstefnuhöld tókust með ágætum og allt gott um það að segja. Ég skrapp líka aðeins inní Fljótshlíð að hitta Ástu vinkonu mína og síðan skrapp ég á Selfoss og lenti þá í mótmælum vörubílstjóra og ætlaði aldrei að komast til baka  Í gær var ég síðan í Reykjavík á fundum, flugferðin var óvenju góð, oft eru svoddan læti hér yfir þegar verið er að lenda. Ég varð græn af öfund þegar ég lenti í sumrinu í Reykjavík því hér er harðavetur ennþá. En eftir að heyra fréttirnar í morgun þá þurfti ég ekkert að öfunda þá sunnlendinga lengur. Og á föstudag stefnum við vestur á bóginn því ætlunin er að kíkja á frænku "litlu" hana Jóhönnu Herdísi á fermingardaginn hennar. Það er reyndar bara pís of keik að keyra í Húnaþing eftir að keyra þetta á Hvolsvöll. Frekari frétta er að vænta á næstunni hjá okkur og jafnvel mynda en læt hér staðar numið (kisa á von á kettlingum sko...)
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 28151
|